Að gefa og að sá sæði!

Samkvæmt orði Guðs í 2. kor. 9: 6-10.

6. En þetta segi ég: Sá sem sáir sparlega mun og sparlega uppskera, og sá sem sáir ríflega mun og ríflega uppskera. 7. Sérhver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu, ekki með ólund eða með nauðung, því að Guð elskar glaðan gjafara. 8. Guð er þess megnugur að veita yður allar góðar gjafir ríkulega, til þess að þér í öllu og ávallt hafið allt sem þér þarfnist og getið sjálfir veitt ríkulega til sérhvers góðs verks.
9. Eins og ritað er: Hann miðlaði mildilega, gaf hinum snauðu, réttlæti hans varir að eilífu. 10. Sá sem gefur sáðmanninum sæði og brauð til fæðu, hann mun og gefa yður sáð og margfalda það og auka ávexti réttlætis yðar.

Póst. 20:35.

35. Í öllu sýndi ég yður, að með því að vinna þannig ber oss að annast óstyrka og minnast orða Drottins Jesú, að hann sjálfur sagði: Sælla er að gefa en þiggja.

Matt.10: 8.

8. Læknið sjúka, vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda. Gefins hafið þér fengið, gefins skuluð þér láta í té.

Og hinn ritninga staðurinn er í Markúsarguðspjalli í fjórða kaflanum. Þar sem Jesús talar um sáðmanninn. Þið getið lesið hann sjálf(ur). Ég vill ekki fara með of langann ritninga að lesa. Þess vegna bendi ég ykkur á hann.

Þetta er byggt á orði Guðs og opinberun sem Heilagur andi sagði mér í dag.

 Og þetta er opinberunin!

Skiptir það Guði að gefa og sá?

Já það skiptir Guði máli vegna þess að eðli Guðs er að gefa og að vera sáðninga maður. Þess vegna segir hann í 2.kor.9: 7Guð elskar glaðan gjafara. Og þess vegna segir hann í orði sínu. Gefið og yður mun gefast. Sáið og þér munuð uppskera. Og þegar þið gefið eða sáið væntið þess að þið munuð fá hundrað fallt frá Guði í  sérhverjum blesunum frá himinhæðnum.

Ef að það skiptir Guði að máli að gefa þá ætti það að skipta okkur máli sem erum kristinn. 

Kæru vinir ég hvet ykkur að sá og gefa og munið að vænta uppskerunnar. 

Megi Guð blessa ykkur ríkulega og gefa ykkur uppskeru.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Ég vissi ekki að Guð væri Hafnfirðingur (GAFLARI) Já það er gott að gefa, gefur þú tíund og fórnir? Ef já hversvegna?

Aðalbjörn Leifsson, 9.11.2007 kl. 18:40

2 Smámynd: Þormar Helgi Ingimarsson

Alli minn. Þetta var orða villa í textanum það átti að vera gjafari eða sá sem gefur. Takk fyrir að benda mér á þessa villu. 

Svar mitt er já og þótt það hafi ekki verið undan farið þá er það breitt núna. Þetta eru ekki bara einhverjar tilfinningar heldur er það raunverulegt vegna Jesú af því að ég greip þetta þega Heilagu andi opinberaði mér þetta. Já Takk fyir að kalla mig töffara. Vegna þess að ég er það í Jesú. Og Jesús er mesti töffarinn sem til er í heiminum.

 

Þormar Helgi Ingimarsson, 9.11.2007 kl. 23:29

3 identicon

er einhver bloggstífla í gangi?

maggi (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 11:47

4 Smámynd: Þormar Helgi Ingimarsson

Nei og ekki heldur fíla. Maggi Takk fyrir að spyrja. Meti Guð blessa þig.

Þormar Helgi Ingimarsson, 22.11.2007 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband