Gangan með Jesú

 

Þormar H Ingimarsson. 

 

Ég kem til þín eins og ég er

og ég beygi mín kné og bið.

Og ég bið til þín ó Guð að þú fyrirgefir mér.

Þú fyrirgefur mér.


Ég kem til þín í öllum mínum styrkleika

og ég beygi mín kné og bið.

ég bið til þín ó Guð að þú frelsar alt mitt fólk.

þú frelsar alt mitt fólk.


 

Göngum Jesú leiddu mig.

Göngum Jesú leiddu mig í gegnum nóttina.

Göngum Jesú sýndu mér leiðina.

Göngum Jesú sýndu mér kærleika þinn.

 Göngum Jesú sýndu mér hvernig á að elska aðra menn.

Með þínum kærleika. Já með þínum kærleika.


 

Ég kem til þín eins og ég er

og ég beygi mín kné og bið.

ég bið til þín ó Guð að þú læknir alla þjóðina

þú læknir alla þjóðina.


Ég kem til þín eins og ég er

og ég beygi á mín kné og bið.

Og ég bið til þín að ég megi lofa þig.

Ég lofa þig um aldur og eilíf. Ég lofa þig.

 

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Þormar.

Takk fyrir þitt framlag.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 17.6.2010 kl. 06:54

2 Smámynd: Þormar Helgi Ingimarsson

Sæll Þói minn. Takk fyrir innlitið.

Þormar Helgi Ingimarsson, 17.6.2010 kl. 07:34

3 identicon

Sæll Þormar. Segðu mér, hvað gerir maður þegar það er erfitt að trúa?

ll (IP-tala skráð) 19.6.2010 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband